Fögur kallast kann hér sveit
Bls.42
Skýringar
Vísan hafði áður verið prentuð í Lögbergi en ekki rétt eftir því
sem Margeir hefur eftir föður sínum sem átti tal um vísuna
og prentun hennar þar við Baldvin sjálfan.
Fögur kallast kann hér sveit,
krappur fjallasalur.
Þó hefur galla, það ég veit,
þessi Hallárdalur.