Brot úr kveðju | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Brot úr kveðju

Fyrsta ljóðlína:Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá
bls.223
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá
að lokkar oss himins sólarbrá
og húmið hlýtur að dvína
er hrynjandi geislar skína.
2.
Vor sál er svo rík af trausti og trú
að trauðla mun bregðast huggun sú.
Þó ævin sem elding þjóti
Guðs eilífð blasir á móti.
3.
Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást
að hugir í gegnum dauðann sjást
- Vér hverfum og höldum víðar
en hittumst þó aftur - síðar.