Norðurljós | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Norðurljós

Fyrsta ljóðlína:Ég sat um kvöld og horfði hátt
bls.84
Viðm.ártal:≈ 0
Ég sat um kvöld og horfði hátt
á himinblámans djúp
og augun drógust dræmt í kaf
í dimman næturhjúp.
Ég vildi horfa húmið burt
og heiðið bak við sjá.
Og ef til vill var augasteinn minn
óskasteinn minn þá.


Ég vildi sigra sortans mátt
og sjá í gegnum hann
því einhver þrá til æðra lífs
í æðum mínum brann.
Ég þráði meira, meira ljós

í mína veiku sál;
ég þráði glóð frá Guði sjálfum
- glóð sem væri ei tál.


Þá kviknaði allt í einu snöggt
á undralampans kveik.
Og sjá, hin björtu blysin Guðs
sér brugðu í fagran leik.
Þau þutu víða vegu geims
og vóðu blámans hyl
og leifturhraðar litasveiflur
lýstu jarðar til.

- - -
Þá barnið hló í brjósti mér
og birtan varð mín hlíf.
Ég heyrði Drottins hjarta slá
þá hvarf mér dauði og líf.
Ég sá við undralampans ljós
á leifturhraða ferð
Úr ótal slíkum augnablikum
eilífðin er gerð.