Auða kirkjan 24.12. 1940 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Auða kirkjan 24.12. 1940

Fyrsta ljóðlína:Kirkjan kúrir auð
Heimild:Glæður.
bls.62
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Kirkjan kúrir auð
köld og föl sem lík
auðs og álits snauð
eins og slitin flík.
Engin klukknaköll
kór né bænagerð
kynna koti og höll
Krist, sem er á ferð.
2.
Einnig autt og kalt
er mitt trúarskar.
Höfuð ber ég hallt
harma það sem var.
Leiti örþyrst önd
æðstu þekkingar
grípur haldlaus hönd
hálmstrá blekkingar.
3.
Blessað jólabarn
bjóð þú öllum frið
bræddu hugans hjarn
haltu trúnni við.
Önd mín almyrkvuð
er svo dauð og köld.
Vertu góði Guð
gestur minn í kvöld.
4.
Þá er bölið bætt
bjart og hlýtt um leið.
harmakveinið hætt
horfið allt sem sveið.
Risin sumarsól
sungin dýrðarljóð
heldur heilög jól
hjartans aringlóð.