Til lesarans | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til lesarans

Fyrsta ljóðlína:Er þráir mín sál að syngja
Heimild:Glæður.
bls.13
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Er þráir mín sál að syngja
og svífa frá villtum glaum
þá ljóðhörpu læt ég klingja
og leiðist í sæludraum.
En ljóðstafi lítt ég þekki
með listhreimi kveð ég ekki
svo öll virðast efnin naum.
2.
Ég leik ekki á sterka strengi
og stilli ekki bogann hátt
því harmstunur hafa lengi
hindrað minn andardrátt.
Í titrandi tónaniði
er tryggum ég leita að friði
þú heyrir minn hjartaslátt.
3.
Með blíðróma bænakvaki
í barnslegri von og trú
ég bíð þess að birtan taki;
mín bjargföst er huggun sú.
Þótt fátækleg finnist ljóðin
þau flytja þér hjartans óðinn
þar falsyrði ei finnur þú.
4.
Mig töfra ekki háir hljómar
sem hrópandi þrumugnýr
ef hjartað ei undir ómar
og ylur í ljóði býr.
Ef kærleikans undiralda
sinn ylvæng á hjarnið kalda
breiðir – er bragur dýr.