Til æskuleiksystur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til æskuleiksystur

Fyrsta ljóðlína:Rifjast upp í minni mínu
bls.39
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Rifjast upp í minni mínu
morgunglaðar æskustundir.
Saklaus börn með blik á augum
bláum himni léku undir.
2.
Man ég einnig vetrarvöku
vorsins töfraheimi fjærri,
þar sem gnægð af gleðiföngum
gerði lága bæinn hærri.

3.
Ylja mun, þótt árum fjölgi,
æskudrauma hálfgleymd saga.
Leiksystir frá liðnu vori.
Lifðu heil um ævidaga.