Verðmæti lífsins | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Verðmæti lífsins

Fyrsta ljóðlína:Þeir sjá ei sólina rísa
Heimild:Fífulogar.
bls.15
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Þeir sjá ei sólina rísa
er síðla úr bólinu læðast
og fara á mis við fögnuð þann
að finna er hrjóstrin klæðast.

2.
Ei finna þeir fannirnar eyðast
í fjallanna bröttu hlíðum
er tókst ei að vernda vorhug sinn

í vetrarins nöpru hríðum.
3.
Þeir hafna hrífandi krafti
þá heilögu verðmætin græðast
er hjallanum neðsta hörfa frá

og hata að lýjast og mæðast.

4.
En hugsjónir frjálsar og fagrar
fæðast í þeirra hjörtum
er miða áfram að markinu lengst
móti himninum björtum.