Sýn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Sýn

Fyrsta ljóðlína:Og loksins kemur fögur friðaröld
bls.368
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Og loksins kemur fögur friðaröld
með frelsisljómann bláa í augum sér.
Og réttlætið er hennar sterka hönd
og hennar tunga sannleikurinn er.
2.
Einn kristalstæran morgun vöknum við
í vorsins dýrð - og undrumst kannski mest
hve lengi og illa okkur hefur dreymt
hve ömurlegt og svikult það var flest.
3.
Og eins og barn ég lágt af gleði græt
er gullnir fingur dagsins snerta þig
og armar þínir eins og liljublöð
mót undri lífsins fegnir teygja sig.
4.
Og rauðum blómum stráir öldin ung
á okkar veg og syngur brúðkaupsljóð.
Og aldrei framar ógnar vonlaus nótt
og aldrei framar drýpur saklaust blóð.