Dómar heimsins | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Dómar heimsins

Fyrsta ljóðlína:Dómar heimsins dóttir góð
bls.142
Viðm.ártal:≈ 0
Dómar heimsins dóttir góð
munu reynast margvíslegir
glímdu sjálf við sannleikann
hvað sem hver segir

gakktu einatt eigin slóð
hálir eru hversmannsvegir
skeyttu ekki um boð né bann
hvað sem hver segir

inn í brjóst þitt ein og hljóð
rýndu fast ef röddin þegir
treystu á þinn innri mann
hvað sem hver segir.