Ekki er þeim gaman | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ekki er þeim gaman

Fyrsta ljóðlína:Hér áður fyrr Húnaþing umtalað var
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hér áður fyrr Húnaþing umtalað var
og allfrægt í sögum
af forhertum skálkum og fullhugum þar
sem fóru ekki að lögum.
Tra la la la la
Þeir fóru ekki að lögum.
2.
En orðstírnum Húnaþing sóaði senn
úr sögnum og kvæðum
og dali þess byggðu nú dáðlausir menn
og dauðir úr æðum.
Tra la la la la
Já, dauðir úr æðum.
3.
Þá gekk að á vori með gerningahríð
um gróðurlönd andans.
Og rósanna ilmur um akur og hlíð
rauk allur til fjandans.
Ha ha ha ha ha
Rauk allur til fjandans
4.
Menn skyggndust til orsaka, engum var rótt.
Var ættstofnsins kraftur
sem framan af öldinni hafði um sig hljótt
að hjarna við aftur?
O ho ho ho ho
að hjarna við aftur?
5.
Jú, enn fundust nokkrir af órofa tryggð
við arfinn sinn bundnir.
Í Svartárdal fremra og um Svínavatnsbyggð
voru sakamenn fundnir.
Ja, sussum og svei
Voru sakamenn fundnir.
6.
En réttlátir æðruðust ekki um sinn
þeir efndu til funda
og sóru að teyma í tugthúsið inn
hina trúvilltu hunda.
Já, inn með þá, inn
þessa ótætis hunda.
7.
Það ákæruvaldinu andstreymi jók
í árangri sönnum
að siðspilltur almúginn afstöðu tók
með afbrotamönnum.
Ú hú hú hú hú
Með afbrotamönnum.
8.
Þeir þvældust og vörðust um þúfur og börð
í þegnleysi sínu.
En réttvísin kannaði rótlausa jörð
í ráðleysi sínu.
Æ æ æ æ æ
í ráðleysi sínu.
9.
Og réttvísin hikaði - heldur sig enn
í hlaðbrekku sinni
og enn bíða dóms hinir margseku menn
mál er að linni.
Tra la la la la
Mál er að linni.