Vísur til Ásgeirs frá Gottorp | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vísur til Ásgeirs frá Gottorp

Fyrsta ljóðlína:Enn er Geiri á glófextum
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Enn er Geiri á glófextum
gota dreyra lituðum
og með fleiri einkennum
andlitsgeira mjallhvítum.
2.
Marinn rakki ramefldur
reisir makkann tygjaður.
Er sem hlakki hervæddur
hildarsvakki víkingur.
3.
Geiri sest á gjarðamar
gjöfum hresstur Bakkusar
sýnist flestum saman þar
sveinn og hestur fornaldar.
4.
Mökkur gýs úr götunum
grjótið frýsar eldingum
reiðargnýs með gagnyrðum
grundin lýsir tilþrifum.
5.
Engar leiðir ellin fann
enn að veiða léttfetann.
Vorið heiða vermir ´ann
vængi breiðir yfir hann.
6.
Ekkert slaknar á honum
einskis sakna hjá honum
ljóðin vakna, ljá honum
lof, sem vaknar frá honum.
7.
Njóttu lengi gota góðs
góðra drengja, víns og fljóðs
þýðra strengja, lags og ljóðs
lukkugengis, þreks og móðs.



Athugagreinar

Neðan við ljóðið hefur skrásetjarinn SigHalld. sett: (Magnús Aðalsteinsson)