Til séra M. Jochumssonar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Til séra M. Jochumssonar

Fyrsta ljóðlína:Í þessum bjarka laufgum lund
bls.53
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Í þessum bjarka laufgum lund
oss ljúft er dvöl að eiga
því okkar hitt er óskastund
sem allir fagna mega.
Vér hjá oss kæran höfum gest
á hauðri vesturslóðar.
Þér fagna vill vor byggð sem best
þú Bragi Snælands þjóðar.
2.
Þín ljóð oss skemmtu ættjörð á
þau andlegt gull vér teljum.
Þau ættlands strönd oss fylgdu frá
í fjarlægð nú hvar dveljum
þau örva kjark hin unga manns
þau anda veikan stoða
þau svala hjarta syrgjandans
og sæla heimvon boða.
3.
Þú gafst oss Tegners lofsvert ljóð
á ljúfa feðra máli
þú birtir djúpan Byrons óð
sem bitru líktist stáli.
Um Hallgrím kvaðst þú ljóð af list
þau lengst vor hjörtu geyma.
Þín ljóð vor hjörtu ljóðaþyrst
sem lífæð gegnum streyma.
4.
Vort skáldið kæra, þökk sé þér
að þú í dag oss gladdir
sem heiðursgest þig virðum vér
það vitna hjartans raddir.
Vor hugur líkt sem hrökk af blund
með hingað komu þinni.
Þín dvöl hjá oss, þótt stutt sé stund
hún stöðvast oss í minni.
5.
Á meðan íslenskt mál og þjóð
ei manna niðjum gleymast
sem andlegt gull þín ljósfleyg ljóð
í letri og hjörtum geymast.
Já, stórt og dýrt þitt dagsverk er
svo daglaun há þú ættir.
Þér hraustrar elli óskum vér
svo yrkja jafnan mættir.
6.
Vorn skyggir góðan gleðifund
sem gest þig kveðja hljótum
þótt innst í hjarta alla stund
þíns anda ljóss vér njótum.
Um foldarbraut og báru geim
að brjóstum jökulsvanna
þig leiði drottinn heilan heim
í hendur ástvinanna.