Kyndilmessuvísur 1943 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kyndilmessuvísur 1943

Fyrsta ljóðlína:Sú trú er gömul, en tíðum brást
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1943
1.
Sú trú er gömul, en tíðum brást
menn töldu það væri galli:
Í heiði ef dag þennan sólin sást
eða settist í öllu falli.
2.
Nú hefur hún skinið heitt í dag
og hlýjað með geislum sínum
og skýhnoðri sást ei við sólarlag
nú er sólskin í huga mínum.
3.
Já, blessaði dagur, þótt dýrðin þín
dyljist nú mörgu hjarta
þá finnst mér samt meðan sólin skín
það sæmi ekki vel að kvarta.