Hafsteinn Pétursson | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hafsteinn Pétursson

Fyrsta ljóðlína:Vor og haust
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1960

Skýringar

f. 14.1.1886 - d. 28.8.1960
Kveðja sveitarinnar
1.
Vor og haust
vefa enn sitt klæði
endalaust
yrkja lífsins kvæði.
Leysi snjó
lindir syngja allar
eftir þó
aftur haustið kallar.
2.
Heitan blæ
hlaðinn sól og vori
gróðurfræ
geymd í haustsins spori
þráir mold
meðan lífið dafnar.
Móðurfold
minjum dýrum safnar.
3.
Þessi sveit
þráði vor í blænum
helgan reit
heima í dölum grænum.
Þú varst sá
sem úr viðjum leysti
fólksins þrá.
Fólkið á þig treysti.
4.
Markviss tök
táps og karlmennskunnar
hóglát rök
rósemd prúðmennskunnar
veittu þér
virðing, traust og sóma
móta hér
minning heiðum ljóma.
5.
Æskan fann
æ í samfylgd þinni
vökumann
vorsins hverju sinni.
Eldist hver
árin þyngja sporið.
Fylgdi þér
fram að hausti vorið.
6.
Sveitin þín
þakkar hlýja blæinn
frjómögn sín
flytur út í daginn.
Vaxi menn
vanda hverjum sínum
verður enn
vor í dalnum þínum.