Brúðkaupsljóð 2 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Brúðkaupsljóð 2

Fyrsta ljóðlína:Í dag finnst oss heimur með hátíðarbrag
Viðm.ártal:≈ 0
Í dag finnst oss heimur með hátíðarbrag.
Við hyllum þau brúðhjón sem vígðust í dag
með vonir að veganesti.
Þau eiga sér dýrðlega draumaborg
dásemdar heima - þar finnst ekki sorg,
bjartur er draumurinn besti.

Hugurinn fagnandi flýgur um geim
í frelsi er minnir á fjallanna heim
með birtu á láði og legi.
Þau eiga sér litla og litfríða snót
með lokkana bjarta sem brosir á mót
lífinu á dýrðlegum degi.

Við óskum þeim gæfu um ókomin ár
að ánægjuheimur sé víður og blár,
laugaður ljósinu bjarta.
Drottni þau gefa sitt dýrasta heit
dafni það ávallt í kærleikans reit
sem tengt hefur hjarta við hjarta.