Rautt flos | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Rautt flos

Fyrsta ljóðlína:Stærstum af hamingjuhlyni
bls.1978 bls.47
Viðm.ártal:≈ 1950
1.
Stærstum af hamingjuhlyni
hafa þau eplunum náð!
sem áttu hjá framtíð inni
óstigin spor og þráð.
2.
Mýktist í glaða mildi
morgunsins þunga brá.
Allt varð í svipan ofið
óskum, vonum og þrá.
3.
Sendi þeim gæfan gjöful
sitt geislandi hlýja bros
hrifin sem höfðu að hvílu
haustlyngsins rauða flos.