Vináttan | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vináttan

Fyrsta ljóðlína:Gulli og perlum að safna sér
Heimild:Stuðlaberg.
bls.2/2017 bls. 19
Viðm.ártal:≈ 2000
1.
Gulli og perlum að safna sér
sumir endalaust reyna
vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
2.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina
en viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.


Athugagreinar

Lag: Vem kan segla