Hvar eru fuglar – | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hvar eru fuglar –

Fyrsta ljóðlína:Hvar eru fuglar þeir á sumri er sungu?
bls.88-89
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Hvar eru fuglar þeir á sumri er sungu?
Þeir suður flugu brimótt yfir höf.
Hvar eru blómin sæl frá sumri ungu?
Und snjónum hvíla þau í vetrar gröf.
2.
Hvað er nú söngva? Vindgnýr hærri, hærri
um hvítnað land, er þung með drunuhljóð
þar þögull sjófugl þyrpist brimströnd nærri
hinn þrúðgi gýmir kveður stirnað óð.
3.
Nei, sönglíf, blómlíf finnst nú aðeins inni
þar andinn góður, býr sér sumar til
með söng og sögu, kærleik vina kynni
á kuldatíð, við arinblossans yl.
4.
Svo dvelji söngfugl hver einn fyrir handan
og hylji fönnin blómið hvert sem dó;
vér eigum sumar innra fyrir andann
þá ytra herðir frost og kyngir snjó.


Athugagreinar

Ljóðið var sungið á Alþ.hátíðinni 1930 við lag Svbj. Sveinbjörnssonar.