Einn vil eg vera | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
1.
Ýmsir sækja í sollinn gleði
svelgja þyrstir glaumsins funa
en þegar mér er þungt í geði
þrái eg kyrrð og einveruna.
2.
Þegar guðleg gifta sína
góðvegi mig lætur kanna
geng ég helst með gleði mína
götuna til öræfanna.
3.
Allt það sem ég ann og dái
á þeim slóðum fylling hlýtur.
Fegurð sanna sem ég þrái
sál min finnur þar og nýtur.
4.
Einveran mér yndi gefur
opnar glæstar draumaborgir
sér að barmi blíðleg vefur
bæði gleði mína og sorgir.