Skattframtal Björns G. Björnssonar | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Skattframtal Björns G. Björnssonar

Fyrsta ljóðlína:Fram til skatts ber fyrst að telja
Heimild:Glæður.
bls.106-107
Viðm.ártal:≈ 1950
Eignir:
Fram til skatts ber fyrst að telja
fríðan búpening:
Hryssur tvær og holdlaus belja
heimsins mesta þing.

Hús ég byggði hér á kletti
handa mér og frú.
Líka hef ráð á leigubletti
er langdrægt fóðrar kú.

Innbúið er einkum dallar
ei með tískusvip.
Lagartunnur lekar allar
líkt og Kölska hrip.

Ég á orf sem enginn brýtur
eða snertir á.
Eylandsljá sem aldrei bítur
ef ég reyni að slá.

Brýnið líka bölvað hræsi
bæði gróft og hart.
Eitt sinn þó ég um það læsi
af því biti skarpt.

Innstæður má enginn nefna
er það lagabrot.
Heiðarleik sú haftastefna
hefur fellt í rot.

Skuldir:
Ég er í skuld við allt og alla
er ég hefi kynnst.
Þeir hafa mína mörgu galla
mildað – að mér finnst.

Tekjur:
Ekkert folald, enginn kálfur
engin veiðiföng.
Konan geld, ég gagnslaus sjálfur
guggnaður við söng.

Frádráttur:
Það er gömul sannorð saga
sem ég hallast að:
Frá einu núlli er illt að draga.
Ekki kann ég það.

Undirskrift:
Undirskrift þarf ekki að vanda.
Engum manni dylst
hér að ætti helst að standa
Húsa-Björn – það skilst.