Ísbjarnarblús | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Ísbjarnarblús

Fyrsta ljóðlína:Einmana björninn um ísinn fer
bls.á Smyrlabjörgum 2008
Viðm.ártal:≈ 2000
Einmana björninn um ísinn fer
úti á Norðurhjara.
Vaxandi hlýnun hafsins er
og heldur langt milli skara.
Suður á Skaga sund hann ber
þá sýnum við allan vara.
Ráðherra mætir og ráðið sér
rétt er að skjóta hann bara.