Hákon í Húsum | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hákon í Húsum

Fyrsta ljóðlína:Einn er karl á Austurlandi
bls.1993 að Hallormsstað bls. 51-53
Viðm.ártal:≈ 2000
1.
Einn er karl á Austurlandi
alræmdur er þessi fjandi
frá Hólsfjöllum að Héraðssandi
hann ég yrki fús um
Hákon í Húsum.
Ef að skyldi um það fjallað
allt sem kauði hefur brallað
hundrað ár mér entust varla að
yrkja verðugt blús um
Hákon í Húsum.
2.
Vaskur eitt sinn vann í tolli
voðalegum skrekk þar olli
bófa fyllti hræðsluhrolli
svo helst þeir líktust músum
Hákon í Húsum.
Löggæslu þá líka vann að
loks því hætti er hann fann að
hér er allt það besta bannað
oss breyskum jarðarlúsum
Hákon í Húsum.
3.
Með Svíakóng í svitabaði
svipaðist eftir hreindýrstaði
upp í Snæfell ók með hraði
eftir moldargrúsum
Hákon í Húsum.
Seinna kóngsi sagði öllum
að svaðilfarir uppi á fjöllum
farið hefðu í fylgd með tröllum
frásögnin er plús um
Hákon í Húsum.
4.
Hrunadansinn tróð í teitum
töfraði fljóð í öllum sveitum
og sér gjörði aldrei neita um
afmorsbrall með spúsum
Hákon í Húsum.
Öls við borð var aldrei hræddur
ei var hinn mjói vegur þræddur
nú er hann orðinn endurfæddur
alkóhóls frá krúsum
Hákon í Húsum.
5.
En í stað þess alla daga
ofan í sinn hvolfir maga
öli Suttungs ei til baga
sem aldrei fæst í brúsum
Hákon í Húsum.
Óðarperlur ort hann getur
ertni og grín þó hærra metur
skemmtir okkur víða um vetur
við er saman djúsum
Hákon í Húsum.
6.
Loks í sveitafaðminn flúði
fastnaði sér kot og brúði
fuglar meður fjaðraskrúði
flögra nú í rús um
Hákon í Húsum.
Í Fljótsdalnum hann býr með birki.
Brag í kvenna nafni eg yrki:
Við óskum þess hann auðnan styrki
með ástarþökk við knúsum
Hákon í Húsum.