Tamdi svanurinn, 1932 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
1.
Hörmum gárast hugurinn,
hrynja tár af vöngum.
Hvað þú, sári svanur minn,
syndir á bárum þröngum.
2.
Áður þorið áttir þú,
æðri sporum vanur.
Lítið vorið verður nú,
vængjaskorinn svanur.
3.
Áttir leið að æðri sæng,
enn er seiðir – lifir.
Sveifst á breiðum, björtum væng
byggð og heiðar yfir.
4.
Fjalls úr þröng gat flugið þitt
frelsis löngun vakið.
Heillaði löngum hjarta mitt
himneskt söngva kvakið.
5.
Hér í dróma hernuminn
hinstu dóma bíður.
Aldrei hljómar oftar þinn
engilrómur þýður.
––
6.
Borgir falla, breytist trú,
best þá galla sjáum
við, sem allir eins og þú
yfir fjallið þráum.