Þórisvatn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Þórisvatn

Fyrsta ljóðlína:Milli dökkra móbergsfjalla
bls.125-126
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Milli dökkra móbergsfjalla
mikill geymist sjór.
Hamingjan má heilög vita,
hversu hann er stór.
Þótt ég ríði fell af felli,
flöturinn teygir sig
alltaf lengra en ég greini,
alltaf fyrir mig.
2.
Upp við strendur, út um flóa,
ölduföll og brot
bergmála í hengihömrum
hvell sem byssuskot.
– Grónar strendur eru þar ekki. –
Úrillt vatnatröll
hvítu brimi bakka lemur,
brýtur niður fjöll.
3.
Undir klettum skuggaskútar
skellum taka mót.
Svarrar þar með þungum drunum
þegar kvarnast grjót.
Magra, svarta silungsslápa
seiðir kvikan grá,
gabbar upp að bröttum björgum,
brimi rotar þá.
4.
Á þeim bárum aldrei heyrist
áraglam né skraf.
Dauðinn hefur galdri grimmum
gasprið tekið af.
Allt, sem þraukar þar og lifir,
það er fátækt, smátt,
berst við hungur alla ævi,
enda næsta fátt.