Vinir á ferð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Vinir á ferð

Fyrsta ljóðlína:Man ég þá margoft saman.
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Furða hve oft á fegurð
við förum um veginn blind.
Af Guðmundi og Andvara geymi
göfga og hugþekka mynd
2.
Man ég þá margoft saman.
Sú minning er geymslu verð.
Hinst og fyrst var mín hugsun.
Hér eru vinir á ferð.
3.
Guðmundur fann með gleði
þá göfgi, sem fákurinn bar.
Honum hamingja og frelsi
hnakkur og taumur var.
4.
Eftir eigandann fallinn
einskis hann framar beið.
Beint í ósinn á Blöndu
brunaði skemmstu leið.
5.
Langt sund milli landa,
launþungt útfallið þar.
-Feigðar- fyrstur af öllum
fréttina heim´ann bar.
6.
Beint móti björtum degi
brunar fákur á skeið.
Austur eilífðarvegi
eiga þeir saman leið.



Athugagreinar

Guðmundur Frímann Agnarsson Máfabergi átti reiðhest er hét Andvari, menn hafa sagt mér að hestamannafélagið Andvari beri nafn þessa hests og er hann þá í góðra hesta hópi eins og Sörli, Fluga, Freyfaxi og Sleipnir svo einhver sögufræg hross séu nefnd. Einn daginn eru þeir félagar í útreiðartúr utan ár er Guðmundur fellur af baki og lést. Hestur trylltist og tók styttstu leið heim yfir ósinn sem hann hafði þó aldrei synt áður og nemur ekki staðar fyrr en við úti dyr á Máfabergi. Hrossið undi sér ekki lengur og var felldur. Hann er svo heygður með reiðtygjum á Háubrekku.
Skráð eftir Guðm. P. S. Jónssyni Blönduósi í des. 2019