Rökkursýnir | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
Þögul nóttin blæju breiðir
bjartar yfir dagsins leiðir,
hægt og létt um laut og hjalla
lætur húmsins töfra falla.
Undur kvöldsins oft mig seiða,
óskavegu hugann leiða.
Englar rökkurs yfir sveima,
opna nýja dýrðarheima –
þar sem lífsins ljómi krýnir
ljóðin – mínar rökkursýnir.