Halldór Gunnlaugsson sextugur | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Halldór Gunnlaugsson sextugur

Fyrsta ljóðlína:Víst mun ég sem vera ber
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1980
Flokkur:Afmæliskvæði

Skýringar

Þeir nafnar og vinir Halldór Jóh. og Halldór Gunnlaugs kölluðu sig sín á milli Nafna betri og Nafna verri.
Víst mun ég sem vera ber
virða elli þína.
Sextugur því sendi þér
með samúð kveðju mína.

Við þig ellin verði mjúk
vöðvum hlífi og sinum.
Þinn hún aldrei beygi búk
þótt bresti í öllum hinum.

Laus við sút og heimsins hark
hress í umferðinni.
Þrjóti aldrei þrek né kjark
að þjóna náttúrunni.

Eflaust mega allir sjá
að með gylltu letri
hamingjuóskir færðu frá
frænda og nafna betri.