20 ára afmæli | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

20 ára afmæli

Fyrsta ljóðlína:Samvinnubankinn
bls.2 árg. 1 tbl., bls. 13 1.febr. 1984
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1984
Flokkur:Afmæliskvæði

Skýringar

Í tilefni af 20 ára afmæli útibús Samvinnubankans í Hafnarfirði 4. janúar 1984.
Samvinnubankinn
sínum vinum
gagnhollur sé,
þótt gangi á ýmsu.
Láti ótrauður
lán í té
og arð tryggi
innistæðna.

Vaxi velgengni
á vegum öllum.
Framtíð löng
farsæl verði.
Tvítugur nú
trausts er verður.
Árna einstakra heilla
ágætri stofnun.

Kaffi gott
af kærleika veitt
og ylhlýju
ungra kvenna,
styrk veitti
gegn stórhríð að halda.
Þetta gladdi.
Þökk hafið.