Minning | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Minning

Fyrsta ljóðlína:Kveð ég hér góða konu
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:1989

Skýringar

Minningarljóð um Rannveigu Rögnvaldsdóttur, Sauðárkróki dáin 14. júlí 1989.
Kveð ég hér
konu góða.
Fóstru mína
á fyrstu árum.
Bjargvætt minn
á bernskudögum.
Lífgjafa
svo lengdist aldur.

Einstök var
og átti hylli.
Manni sínum
mikill styrkur.
Börnunum
var besta móðir.
Fyrirmynd
á flestar lundir.

En nú kvödd
á ævikvöldi.
Þreytt orðin
og þráði friðinn.
Heim fer
á hærri sviðin.
Á guðsvegum
gekk með sæmdum.

Hafðu þökk
þín fyrir störfin.
Orðin hlýju
og umhyggjusemi.
Fórnarlund,
er færði mörgum
sólskin
um sína daga.

Farsæld þig
um framtíð blessi,
prýðilega
og prúða kona,
vinnusama
og vel gerða,
þess biður einn
frá Ölduhrygg.