SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Tilbrigði við sonnettu
Lýsing:
Engar sérstuðlaðar línur.
Dæmi
Nú sefur allt í svölum næturskugga,
minn sálareldur veikur logi á skari. Ég vonlaus út í vetrarmyrkrið stari. Válynda nótt, hví byrgir þú minn glugga? Og haustið breiðir hendur yfir jörðu og heimtar feigan allan sumarblóma og kyrrlátt rökkrið drepur allt í dróma sem dagsins birta og sólin áður vörðu. Mín sál er lauf sem leitar fölt til jarðar og lætur aðeins vinda ráða för en ekki skip sem líður létt úr vör og lyftir segli er rísa öldugarðar. Dimmhærða nótt, ó, deyf þú mína kvöl, ó, dvel þú hjá mér, kyrrlát, þýð og svöl. Valdimar Tómasson: Sonnetta um haust Ljóð undir hættinum |