| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Oft er vegurinn vænn heim að bænum

Höfundur:Gestur Auðunsson
Oft er vegurinn vænn heim að bænum,
vorsól gyllir hvern einasta hól,
grösin rétt aðeins bærast í blænum
og Bogga í Málmey í spánýjum kjól.

Steini í Jómsborg, hann stendur á skaki
stýrir burt þegar hvergi fæst bein.
Þá fer Gvendur í Brekkhúsi af baki
gamla Brún sínum inn við Hástein.