| Vísnasafn Skagfirðinga
Vísnasafn Skagfirðinga

Innskráning ritstjóra
AAAA2

Deginum seinkar myrkrið er meira en nægt

Bls.29, bls. 79
Flokkur:Bílavísur


Tildrög

Hjörleifur kom á jeppa sínum að Norðurá í myrkri og þurfti að bíða birtingar til að finna nýtt vað á ánni. Þessi vísa varð til meðan hann beið.

Skýringar

Deginum seinkar, myrkrið er meira en nægt
því morgunstjörnurnar lítilli birtu skila
Jesús minn góður hvað jörðin snýst orðið hægt.
Ég held að alheimsmótorinn sé að bila.