Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenska |
Heyr himna smiðurFyrsta ljóðlína:Heyr himna smiður
Höfundur:Kolbeinn Tumason
Viðm.ártal:
Flokkur:Bænir og vers
Skýringar
Sálminn orti Kolbeinn fyrir Víðinesbardaga. Hann er elsti sálmurinn í Íslensku sálmabókinni og reyndar elsti sálmur varðveitti sálmur Norðurlanda. Lag Þorkels Sigurbjörnssonar tónskálds er sungið við sálminn. Er hann oft sunginn, einkum við jarðarfarir.
Heyr, himna smiður,
hvers skáldið biður, komi mjúk til mín miskunnin þín. Því heit eg á þig, þú hefur skaptan mig, ég er þrællinn þinn, þú ert Drottinn minn. Guð, heit eg á þig, að græðir mig, minnst, mildingur, mín, mest þurfum þín. Ryð þú, röðla gramur, ríklyndur og framur, hölds hverri sorg úr hjartaborg. Gæt, mildingur, mín, mest þurfum þín helzt hverja stund á hölda grund. Set, meyjar mögur, máls efni fögur, öll er hjálp af þér, í hjarta mér. |