Eina öryggið | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Eina öryggið

Fyrsta ljóðlína:Íslenska sjálfstæðið efldist í mánaðartíma
bls.166
Bragarháttur:Fimm línur (þríliður) fimm,- tví- og þríkvætt AAbbA
Viðm.ártal:≈ 1950
Tímasetning:1940
Íslenska sjálfstæðið efldist í mánaðartíma,
öryggið brást, þó að Hermann sé frækinn að glíma.
Hvað verður næst?
Hvernig fær úr þessu ræst?
Nú gagnar ei hlutleysisgríma.

Öryggið finnst mér það einasta að vera ekki deigur,
álíta að hver og einn deyi ekki nema hann sé feigur.
Vanda okkar ráð
vaxa í einingu og dáð,
tryggja okkar andlegu eigu.


Athugagreinar

9.5.’40