Vísur Kvæða-Önnu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vísur Kvæða-Önnu

Fyrsta ljóðlína:Til aðvörunar ellimóð
bls.44
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) fer-, þrí- og fimmkvætt:aBaaB
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1924
Til aðvörunar ellimóð 
ævinni skal ég lýsa: 
Móðir mín var fátækt fljóð, 
förumanna gekk hún slóð, 
átti sjaldan eina nótt sér vísa. 

Enginn leiki eftir mér 
ævidagana mína, 
því ekki er víst, að auðnist þér, 
að önglað saman farðasmér 
sé tekið gilt, að bræða yfir bresti þína.