Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Bjarna ThorarensenFyrsta ljóðlína:Skjótt hefir sól brugðið sumri
Höfundur:Jónas Hallgrímsson
bls.134–135
Viðm.ártal:≈ 1825–1850
Tímasetning:1841
1. Skjótt hefir sól brugðið sumri
því séð hef ég fljúga fannhvíta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri; sofinn er nú söngurinn ljúfi í svölum fjalldölum, grátþögull harmafugl hnípir á húsgafli hvurjum. 2. Skjótt hefir guð brugðið gleði góðvina þinna, ástmögur Íslands hinn trausti og ættjarðarblóminn! Áður sat ítur með glöðum og orðum vel skipti, nú reikar harmur í húsum og hryggð á þjóðbrautum. 3. Hlægir mig eitt það að áttuþví uglur ei fagna, ellisár örninn að sæti og á skyldi horfa hrafnaþing kolsvart í holti fyrir haukþing á bergi; floginn ertu sæll til sóla þá sortnar hið neðra. 4. Glaðir skulum allir að öllutil átthaga vorra horfa þá héðan sá hverfur oss hjarta stóð nærri; veit eg þá heimtir sér hetju úr harki veraldar foringinn tignar þá fagna fylkingar himna. 5. Kættir þú marga að mörgu
– svo minnst verður lengi – þýðmennið, þrekmennið glaða og þjóðskáldið góða! Gleðji nú guð þig í hæðum að góðfundum anda, friði þig felsarinn lýða. Far nú vel, Bjarni! Athugagreinar
Kristján Eiríksson bjó til skjábirtingar.
|