Sólarupprás * | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sólarupprás *

Fyrsta ljóðlína:Sól af austurstraumi stígur
Viðm.ártal:≈ 1900
Sól af austurstraumi stígur,
stafar geislum djúpin blá,
dagsins himnesk drottning flýgur
dýrleg gullnum vængjum á;
dimma grímu geisli hrekur,
glaður kyssir dal og hól;
alla þjóð til orku vekur
eilíf – fögur morgunsól.