Minni Íslands | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Minni Íslands

Fyrsta ljóðlína:Með allra heilla ósk í hug
bls.20
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) aBBaCCdd
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1908

Skýringar

Undir titli stendur: „Á þjóðhátíð í Stykkishólmi 1908.“
1.
Með allra heilla ósk í hug
skal, ættarland, þitt minni syngjast,
og þeirri trú: Þú ert að yngjast
og þjóðin vex að þreki’ og dug.
Hver átt er full af ungum vindum
og aldaskýin hverfa’ af tindum.
Hvern huga fyllir fögur spá
um framtíð þá sem landið á.
2.
Þó margt sé það sem milli ber
og málaskvaldur hugi skilji
og rísi móti vilja vilji,
oss tengir, Ísland, ást á þér.
Við viljum allir auðga landið
og allir klæða, græða landið.
Og hér var aldrei áður trú
á Íslands framtíð meiri’ en nú.