Deprecated: pg_query(): Automatic fetching of PostgreSQL connection is deprecated in /var/www/bragi/ljod.php on line 28
SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3139)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Íslands sælaFyrsta ljóðlína:Þóknaðist feðrum frægu
Höfundur:Hans Natansson Þóreyjarnúpi
Heimild:Hans Natansson: Ljóðmæli. bls.127–130
Viðm.ártal:≈ 1875
1. Þóknaðist feðrum fræguforðum Garðars ey, með ást og yndi nægu unni Rögnis mey drenglyndir með dáð og þor; þá var auðug auðnu tíð, Íslands blómstur-vor.
2. Breyst hefir fæst til bóta.búum Ísafróns, velráð valda þrjóta og vosköp frelsis tjóns kúgaði forðum kjark úr lýð, niðurskipan skaparans skín þó alla tið.
3. Fátt vér fegra lítumen frjóa vorsins tíð, anga ilmi nýtum ungu blómin fríð, fuglar syngja sigurljóð, svásan glitrar Suðra fald sólargeisla flóð.
4. Fífill rís á fætur,fjólan varpar blund, sigrar svala nætur sólheit morgunstund, ungu lömbin leika fríð, sauðahjörð og fáka fjöld í fagra skreytir hlíð.
5. Fuglinn fær sér maka,fóstrar ungan nið, fiskar ferðast taka fjarðar inn á mið, lax und fossi finnur grið, þar sem fyrra að hann ár annaðist skyldulið.
6. Niður er nákvæmt skipaðnáttúrunni hér, fatið foldu svipað fengið rjúpu er; svanur i hólma hreiður býr, hrafninn þá í hörmum blám hjúkrar ungum skýr.
7. Flögrar létt um ljóralífguð flugan smál maðkar í moldu klóra, minnkað er, vetrar dá, sérhver tegund sýna kann, uppvöknuð af dauða dúr dansar náttúran.
8. Þessi sjónin sælasýna manni kann umsjón guðs indæla við allt er gerði hann; vantraust þig ei villa lát af ánægjunnar aldinreit í örviskunnar mát.
9. Þó kvarti menn um kuldaá klakafróni hér og sköpin þungra skulda, er skötnum greiða ber, vissulega vænta má, víðar þýtur eitthvað í ólaganna skjá.
10. Biðjum batni hagurbúum Ísalands, fagur frelsisdagur fjörgi andann manns, styðja sérhver annan á, höfði jafnan hjálpi vel hönd er starfa má. |