Kveðja | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kveðja

Fyrsta ljóðlína:Kærasta senda kveðju þér
bls.0
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) aBBaCCdd
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Kærasta senda kveðju þér
Kristín, Vigdís og Júlíana;
á þessum kalda ormabana
þær hafa’ oft óskað þér hjá sér.
Þú hefðir lífgað flokkinn fljóða
með fjörga sál og hjartað góða;
háfleygar andans hræringar
hefur þú jafnt sem viðkvæmar.
2.
Munum við jafnan muna þig;
mundu’ okkur líka, vina kæra!
Ó, að við mættum af þér læra!
Þess hefur óskað hver um sig.
Undarleg tíðin takmörk hefur,
tekur frá öðrum, hinum gefur.
Fylgi þér Guð og farðu vel,
frí við hin dimmu sorga él.