Hetjuljóð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Hetjuljóð

Fyrsta ljóðlína:Útnesið bratta er alltaf jafn hrífandi
Viðm.ártal:≈ 0
Hetjuljóð

1.
Útnesið bratta er alltaf jafn hrífandi
þar enginn fer lengur um hamrana klífandi.
Markvisst og greitt fer nú manndómi hrakandi
en minningin lifir í sögunum vakandi.
2.
Um bergið, í vaðnum, fór Sigmundur svífandi
safnaði eggjunum, glaðbeittur, drífandi.
Feðranna bjargræði fannst honum spennandi
fræknleika sýndi og áhuga brennandi.
3.
Flögðin úr berginu fláráð og skrækjandi
á fulltrúa kristninnar ólyfjan hrækjandi
kjaftana víðu þar glenntu upp glottandi
að gestinum óboðna réðust þau spottandi.
4.
Gægðust úr sprungunum grákollar særandi
grútskitnar klærnar í sigmanninn færandi
eldi þeir blésu frá útvíðum nösunum
óhugur læstist um fýla á snösunum.
5.
Kappinn í vígamóð kollsteypti fjöndunum
kraftur var nægur í þjálfuðum höndunum.
Grettistök fóru úr hamrinum hrapandi
hyldýpið undir svo nákalt og gapandi.
6.
Sig voru mörg, en þar voru þó vakandi
vinir á brúninni, hífandi, slakandi.
Eggin þeir tíndu með hraði úr hempunni
og hrósuðu smjaðrandi langmestu kempunni.
7.
Til Simma ég hugsa er sólin fer hækkandi
og svartfuglinn kemur að björgunum, lækkandi.
Minningin geymi vel manninn sem óttaðist
myrkravöld hvergi og aldregi þóttaðist.