Sunnudagskvöld | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sunnudagskvöld

Fyrsta ljóðlína:Yfir hlíðum aftanblíða hvílir
bls.121-122
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Yfir hlíðum aftanblíða hvílir;
sefur í víðirunni rótt
rjúpan kvíðalaust og hljótt.
2.
Ennþá vakir ein og kvakar lóa,
sú hin staka, sæta raust
sér að baki felur haust.
3.
Bíddu, lóa, berjamóar anga,
fyrst er snjó í fjöllin ber
frjáls yfir sjóinn lyftu þér.
4.
Blessuð, láttu blíða sláttinn hljóma!
kveð mig í sátt við eitt og allt
áður en nátthrím fellur svalt.
5.
Þín ég leita, því ég veit það, lóa:
enginn breytir eins og þú
angri og þreytu´ í von og trú.
6.
Meðan lýðir helgar tíðir halda
á þinn blíða aftansöng
eg vil hlýða kvöldin löng.
7.
Láttu mónum lyngi grónum yfir
líða tóna ljósan stig,
leiða róna yfir mig.
8.
Heiðakirkjan hljómar birkitjölduð;
hollari styrk þar hjartað fær
heldur en myrkum grátum nær.
9.
Daggir falla, dagsól alla kveður,
en mig kallar einhver þrá
yfir fjallaveldin blá.
10.
Lóa smá, er lyfta fráir vængir!
Löngun þá til þín ég ber,
þú mátt sjá hve djúp hún er.