Eigin lýsing (gamansgeip) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Eigin lýsing (gamansgeip)

Fyrsta ljóðlína:Mín er regla lífsins ljót
bls.63–65
Viðm.ártal:≈ 0

1.
Mín er regla lífsins ljót,
láni gróða sloppin:
Eg um hugsa´ ei annað hót
utan að seðja kroppinn.
2.
Varla sinni vanið fæ;
vil ég ei um það dylgja:
Meðan tóri mun eg æ
mínum girndum fylgja.
3.
Fyrst að matast furðu ger;
fyllar stutt mér gagna.
Þetta veldur að ég er
eyðslumestur bragna.
4.
Geysistór ógegndin frí
gerir auðinn lægri.
Álnir tíu tóbaks því
tygg eg upp með dægri.
5.
Óþæg ljóðin oftast þyl,
aðra kannske lýta.
Eitt er það ég aldrei vil
upp úr bókum líta.
6.
Tilhneigingin stíf og sterk
stríðir mót að lifa.
Öll forsmái inniverk,
af því ég er að skrifa.
7.
Líka nokkkuð lyginn er,
lýði smátt þó véli.
En það er ekki að þakka mér,
þó ég sjaldan steli.
8.
Logið umtal oft slaðrað
eiga þegnar hinir.
Mig um engir orða það,
utan flærða-vinir.
9.
Hér af lítt eg hryggur er
og háttum fylgi mínum.
Illgjarn lýður eins fyrir mér
orðum ráði sínum.