Á fornum slóðum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Á fornum slóðum

Fyrsta ljóðlína:Ég fólkið man í fjallbyggðinni minni
bls.34
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Ég fólkið man í fjallbyggðinni minni,
þar forðum lék ég barn í grænum högum,
og indælt var á æsku minnar dögum
að eiga með því samvistir og kynni.
2.
Á burt ég þaðan fór; í fjarlægðinni,
fann ég óm af bernskuvina sögum
endurkveða í eigin hjartaslögum
sem auðna þeirra í blóði mínu rynni.
3.
En lífið fer sem lind í ókunn höf,
ég leita nú á æsku minnar slóðir
að vinna þeim sem byggðu með mér borg.
4.
Nú geymir marga þeirra þögul gröf,
en þeir, sem lifa, rækja störf sín hljóðir,
með þreytta limi og sölnað hár af sorg.