Eftir Sappho | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Eftir Sappho

Fyrsta ljóðlína:Goða það líkast unun er
Höfundur:Saffó (Sappho)
Þýðandi:Bjarni Thorarensen
bls.134
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aaaBcccB
Viðm.ártal:≈ 1825
Flokkur:Ástarljóð
Goða það líkast unun er
andspænis sitja á móti þér
og stjörnu sjá, þá birtu ber,
á brúna himni tindra.
Hefi eg þá í huga mér
svo harla margt að segja þér,
en orð frá vörum ekkert fer,
því eitthvað málið hindrar.

Mjúksár um limu logi mér
læsir sig fast og dreifir sér,
þungt fyrir brjósti æ mér er,
en öndin blaktir á skari.
Sem blossa nálgast flugan fer,
mig færa vil eg nærri þér,
brátt hitinn vex en böl ei þver,
eg brenn fyr en mig varir.