Litla stúlkan sem dó | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Litla stúlkan sem dó

Fyrsta ljóðlína:Í lundinum kæra hún lék sér í ró
bls.103
Bragarháttur:Sex línur (o þríliður) ferkvætt:aBaBaB
Viðm.ártal:≈ 0

1.
Í lundinum kæra hún lék sér í ró,
og ljúfast var gaman við blómin að hjala.
Í glóeyjar faðmi um gullin sín bjó,
en geislarnir þutu um hóla og bala,
svo blíðfagra mærin þar bliknaði og dó
sem blómið er fölnar í vornætur svala.
2.
Mitt ljúfasta barnið með lokaðar brár
nú liðið er frá mér, ég höfuð mitt hneigi
og titra af harmi, því sorgin er sár,
að sjá þig ei framar og heyra þig eigi.
Ó, blessi þig drottinn um eilífðar ár,
ég ávallt þín minnist að síðasta degi.


Hallfreður
Víðir 12. ágúst 1938. Kvæðið einnig varðveitt í eiginhandarriti.