Trúarinnar dagleg áminning | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Trúarinnar dagleg áminning

Fyrsta ljóðlína:Ef að þú drottinn ótta vilt
Bragarháttur:Fjórar línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt:aBaB (aukin ferskeytla)
Viðm.ártal:≈ 1850–0
Trúarinnar dagleg áminning
Lagið: Talaði Jesús tíma þann.


1.
Ef að þú drottins ótta vilt
innræta sálu þinni,
að gjörðum þínum gæt þú stillt,
guði og eilífðinni.
2.
Af hjarta lát þig angra mest
allt sem þú misgjört hefur,
en elska guð og orð hans best,
önd þinni ró sem gefur.
3.
Bænina jafnan iðka átt,
önd þinni líf hún veitir,
ei þú til dyggða öðlast mátt
utan guðs hjálpar leitir.
4.
Elskan til guðs sé hjá þér hrein,
hana lát ávöxt færa,
til sannra dyggða er hún ein
uppsprettulindin skæra.
5.
Ef þínar syndir ógna þér,
æ renn þá hjarta þínu
endurlausnarann upp á hér
og hans dýrmæta pínu.
6.
Sála þín mun þá svölun fá
en sorgir allar þrjóta,
ó, hvílík sæla honum hjá,
hjálpar og liðs að njóta.
7.
Auðmjúkt þakklæti öndin þín
á jafnan drottni færa,
þó framar öllu fyrir pín
frelsarans Jesú kæra.
8.
Að þú frelsara elskir þinn
áttu í hegðun sýna,
lát hana votta sérhvört sinn
um sálar betrun þína.
9.
Ánægður lifðu ætíð hér,
allt líð með þolinmæði,
hugrór þó ekki hlotnist þér
heimsins skammvinnu gæði.
10.
Oft fyrr en varir ævin þver,
eftir því jafnan mundu,
vertu því ætíð vel sem ber
viðbúinn dauðastundu.
11.
Við athöfn hvörja æ sé þér
eilífðin fyrir sjónum,
hennar oss dýrðar heitið er
hér ef að guði þjónum.
12.
Lát oss drottinn svo lifa hér
lífs meðan eigum þreyja,
að síðar megum allir þér
eilífa lofgjörð segja.
13.
Drottinn þíns anda dýrmæt náð
daglega í hjarta mínu
verki svo mitt ég vandi ráð
vel eftir boði þínu.