Í leyni | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Í leyni

Fyrsta ljóðlína:Í stofunni sólin sæla skein
bls.213–214
Viðm.ártal:≈ 0

1.
Í stofunni sólin sæla skein;
þau sátu þar tvö við borðið ein,
og mæri var ung og hjartahrein;
hún hugsaði um þann hinn fríða svein
í leyni.
2.
Þar sat hún svo stilt og starði í ró
á stafina fögru, sem hann dró,
en fegri var höndin fríða þó —
því fann hún svo títt að hjartað sló
í leyni.
3.
Hún hlustaði á orð hins unga manns
og undraðist lærdóm kennarans;
hún geymdi þann allan fræðafans —
og fallegu bláu augun hans
í leyni.
4.
Og hann, sem þó bar svo létta lund,
hér lék hann sér aldrei neitt við sprund;
hún þráði þó alltaf þennan fund —
því þetta var hennar sælu
í leyni.
5.
Þar situr hann fríðu fljóði hjá
og fingrunum hennar stýra má:
hann var ekki strangurstarfinn sá,
en sterklega höndin titrar þá
í leyni.
6.
Og hann var í bekknum hvers manns líð
og hafði þar á sér lærdóms snið,
en þegar hann sest við hennar hlið —
þá hefur hann skakt og oðnar við
í leyni.
7.
Og honum það stundum hugraun fær
hve hjartað hans títt og órótt slær,
er á hann þar leit hin unga mær —
en indælar voru stundir þær
í leyni.
8.
Hún lærði að reikna — skakt og — skjótt
og skrifaði bæði vel og fljótt.
En röddin hans þýða hvýslar hljótt —
hún hvíslaði bæði dag og nótt
í leyni.