Enn nú sama slags | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Enn nú sama slags

Fyrsta ljóðlína:Fylgi þér frelsarans / fegurstur engla krans
Höfundur:Gunnar Pálsson
bls.348–349
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Fylgi þér frelsarans
fegurstur engla krans
á brjóst og bak til sanns
byggjandi traustan skans,
leiddur til föðurlands
lifðu í faðmi hans,
inntalinn utan stanz
í eilífan gleðidans.
2.
Stýrandi stjörnu ranns,
stiftari hjónabands,
heftari böls og banns,
bæn minni gefi hann anz.
Skær blessan skaparans,
skýrust[1] náð lausnarans
og hugstyrking helgarans
hag styðji þessa manns.
3.
Hindrandi voða og vans,
verjandi myrkva fans
og fláræði freistarans
fagnaðar bjóði glans.
Guð sé þér allt í öllu,
eg fel þig örmum þess elskarans.

(NB. Auðséð er til hvers næst fyrirfarandi vers
hneigja má, samt þetta eftirfylgjandi)

Með tón: Drottins hægri hönd etc

Drottins hægri hönd
hönd sé þinni skjól,
skjól bezt og skjöldur,
skjöldur og fegurst sól,
sól og yndi allt,
allt hvað hafa skalt,
skaltu þá vera
skaðlaus æ ávallt;
allt það sannast sízt,
sízt hann gleymi þér,
þér má vera víst,
víst, að drottinn sér,
sér hann til sinna,
sinnir þá að finna;
finnir þú hans náð,
farsæld mun ei linna.