Komdu, komdu kiðlingur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Komdu, komdu kiðlingur

Fyrsta ljóðlína:Komdu, komdu, kiðlingur
bls.147
Viðm.ártal:≈ 0
Flokkur:Þulur

Skýringar

Þulan er úr þýðingu Jóns á Kátum pilti (En glad gutt) eftir Björnsterne Björnson. 
Komdu, komdu, kiðlingur,
komdu, mömmu grákálfur,
komdu, kötturinn Branda.
komdu' að mjálma að vanda.
Andarungar, eltið mig,
ekki' er vert að fela sig.
Komið, grislingar gráir,
gangfærir vart, svo smáir,
og dúfurnar mínar
með fjaðrirnar fínar.
Glitrar dögg á meiði,
glatt skín sól á heiði.
Og hásumar er nú, og hvergi fremur,
og kallaðu á haustið – og það kemur.